Meetings
Members

Lionsklúbbur Þorlákshafnar

Stofnaður 27. maí 1975.

 

Fræðslufundur 12. maí 2012 kl 14:00

Tilefni þessa fundar var að fræðast um útplöntun trjáa og um hvað megi gera betur á svæði okkar Lionsmanna í Skýjaborgum. Til að leiðbeina okkur vorum við svo heppnir að fá til okkar valinkunna menn þá Hafstein Hafliðason garðyrkjufræðing og Aðalstein Sigurgeirsson forstöðumann Rannsóknarstöðvar Ríkisins að Mógilsá.

Hafsteinn er landsþekktur garðyrkjufræðingur enda var hann lengi vel með sjónvarpsþætti um garðrækt. Aðalsteinn sem er fjölmenntaður í skógarfræðum lætur ekki þar við sitja enda er hann búinn að planta í yfir annan tug hektara við fjölskyldubústað sinn vestur af Litla Landi. Aðalsteinn veit því við hvað er að fást við uppgræðslu á okkar svæði.

Við hittumst við Skýjaborgir og gengið var inn á svæðið frá bílastæðinu, upp á klappirnar fyrir ofan áningarpallinn. Á þessu svæði var okkur bent á að setja niður stafafuru þar sem sendugar lægðir eru. Ofan við grenitrén má bæta við fleiri greniplöntum allt upp að klapparbrún. Fórum inn á  grasflötina sem þarfnast áburðar. Röltum nú suður að nýjasta útplöntunarsvæðinu frá því fyrir tveimur árum. Flestar plönturnar eru á lífi en þarfnast áburðar næstu tvö árin. Nú var haldið upp að vímuvarnareitnum, birkilundinum, þar sem plönturnar eru að ná tveggja metra hæð. Í hallanum ofan við lundinn töldu félagarnir, Aðalsteinn og Hafsteinn, upplagt að setja niður sitkagreni þar sem þar er kominn jarðvegur sem lúpínan blessaða hefur myndað. Að lokum var farið inn að áningarpallinum þar sem Jóhann formaður afhenti Hafsteini og Aðalsteini fána Lionsklúbbs Þorlákshafnar sem okkar þakkir. í stuttu máli má segja að niðurstaða þessarar yfirferðar er að verkefni okkar á næstu tveimur árum sé að hlúa að því sem komið er með áburðargjöf og þá helst nýjustu plöntunum. Einnig má planta inn á milli svæðanna stafafuru, sitkagreni og greni eftir því sem við á. Aðalsteinn benti einnig á að nota víði til að mynda skjól fyrir aðrar plöntur og svo bara hvað sem er.

Aðalsteinn bauð okkur nú að skoða svæðið í kringum sumarbústað fjölskyldu sinnar sem er í landi Litla lands eins áður sagði. Það var mikil upplifun að sjá hversu mikil skógrækt fer þar fram, húsin eru umlukt skógi. Farið var upp á hjalla ofan við húsin þar sem Aðalsteinn sýndi okkur hvar stafafuran er farin að sá sér. Einnig var okkur sýndur tilraunreitur þar sem hinu ýmsu klón eru þar í ræktun. Fram kom í máli Aðalsteins að grisjun er orðin það umfangsmikil að það sem til fellur af brenni er langt umfram sem þau geta nýtt til að hita upp húsið og heitapottinn. Næst var að fara niður fyrir þjóðveg þar sem Aðalsteinn hefur plantað í yfir tvo hektara á undanförnum árum. Svæðið er líkt Skýjaborgarsvæðinu og þar sást greinilega munur á vexti planta hvort þær njóti nálægðar við lúpínu eða ekki. Þær plöntur sem vaxa við lúpínu eru komnar yfir meter meðan hinar ná kanski 20 sentimetrum. Á göngunni með þeim Aðalsteini og Hafsteini áttum við Lionsfélagar fullt í fangi með að meðtaka öll þau góðu ráð sem flæddu upp úr þeim félögum. Okkur Lionsmönnum er velkomið að ná okkur í stilka af svæðinu til að nota í Skýjaborgum.

Við enduðum svo þennan fróðlega dag á því að fá okkur molakaffi í Skálanum í Þorlákshöfn. Frábær dagur.

Lionsfélagar á þessum fræðslufundi voru Jóhann Garðarsson, Tómas Jónsson, Steinþór Oddgeirson, Þorsteinn Jónsson, Jón Hjartarson og Guðmundur Oddgeirsson.

 

Lions are an international network of 1.3 million men and women in 205 countries and geographic areas who work together to answer the needs that challenge communities around the world.

Lions Clubs International News